Alríkisyfirvöld í Bandaríkjunum hleruðu dulkóðuð skilaboð sem talin eru koma frá Íran og gætu verið boðun til aðgerða til íranskra útsendara utan Írans. Alríkisyfirvöldin hafa sent viðvörun til lögregluyfirvalda, segir í frétt fjölmiðilsins ABC news.Bráðabirgðaathugun leiddi í ljós að skilaboðin hafi verið send til margra landa, stuttu eftir að æðstiklerkur Írans, Ayatollah Ali Khamenei, var drepinn í árás Bandaríkjanna og Ísrael 28. febrúar. Skilaboðin voru ætluð leynilegum viðtakendum sem búa yfir þekkingu á dulkóðun þeirra og skilja skilaboðin.Þó að ekki hafi tekist að ráða í innihald skilaboðanna að fullu enn sem komið er, þá töldu alríkisyfirvöld ástæðu til að vara lögregluyfirvöld við, svo lögreglan gæti aukið eftirlit sitt með grunsamlegri útvarpstíðni. Ef rétt reynist að skilaboðin