Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óvissustig vegna snjóflóðahættu

Óvissustigi vegna snjóflóðahættu hefur verið lýst yfir á Norðurlandi samkvæmt tilkynningu á vef Veðurstofu Íslands. Íbúar í einu húsi á þekktu hættusvæði í dreifbýli á Siglufirði hafa verið beðnir að rýma hús sitt á meðan óvissustig varir. Þá verða nokkur atvinnuhúsnæði rýmd á Ísafirði í fyrramálið.Vegagerðin hefur lýst yfir hættustigi á Súðavíkurhlíð og Flateyrarvegi frá miðnætti og verður vegunum þá lokað vegna snjóflóðahættu á vegum.Nokkur minni snjóflóð hafa fallið, m.a. á vegi, en ekkert mjög stórt. Mikill nýr snjór er á svæðinu eftir norðan- og norðvestan veður. Aðfaranótt sunnudags hvessir af norðaustri og snjóar. Við það getur orðið töluverður skafrenningur og hröð snjósöfnun á upptakasvæði snjóflóða.
Óvissustig vegna snjóflóðahættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta