Isavia hefur lokað öllum þremur verslunum Rammagerðarinnar í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Rammagerðin hefur starfað í flugstöðinni í rúm fimmtíu ár. Störf hátt í þrjátíu einstaklinga eru nú í húfi.„Starfsfólki okkar í Leifsstöð var verulega brugðið þegar Isavia kom og lokaði. Aðgerðin olli hræðslu meðal starfsfólks enda er þetta alvarleg og ólögleg aðgerð,“ segir Lydía Kims framkvæmdastjóri Rammagerðarinnar.Lydía segir í tilkynningu að Rammagerðin hafi fengið samþykkt greiðsluskjól hjá Héraðsdómi Reykjaness og því séu aðgerðir Isavia ólöglegar. Undanfarna mánuði hafa átt sér stað viðræður milli Rammagerðarinnar og Isavia um rekstrarforsendur leigusamnings í flugstöðinni.„Ágreiningurinn snýr að því að verslanir voru afhentar níu mánuðum eftir upphaf samnings, án afsláttar af leigu, auk þess