Meiriháttar fólksflutningar áttu sér stað í Kópavogi fyrr í kvöld vegna stórtónleika skærustu stjörnu Íslands, Laufeyjar. Gestir voru ferjaðir með Strætó frá Smáralind að Kórnum, þar sem lokað hefur verið fyrir almenna umferð um svæðið meðan á tónleikunum stendur.Laufey heldur tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi um helgina, í kvöld og annað kvöld. Áhorfendur verða átta þúsund hvort kvöld. TÓNLEIKAGESTIR PRÚÐBÚNIR MEÐ ALLSKYNS FÖNDUR Í FARTESKINU Fólk tók að streyma í Kórinn á sjötta tímanum og vakti klæðaburður tónleikagesta athygli. Ungar stúlkur voru klæddar í fallega kjóla í anda Laufeyjar, með alls kyns föndur, bæði töskur og málverk, í farteskinu.Venja hefur verið fyrir því á tónleikum Laufeyjar að tónleikagestir mæti prúðbúnir og att kappi um titilinn Best klæddi tónleikagesturinn