Á leiðinni niður í gegnum Transantartic fjöllin þurfti Höddi, eins og hann er alltaf kallaður, að fara yfir mjög sprunginn og úfinn skriðjökul sem reyndist þrautin þyngri. „Ég var stöðugt að stíga í gegnum sprungur. Þetta var eins og að vera á jarðsprengjusvæði,“ segir hann um erfitt svæði á skriðjöklinum.