AðsendListi Framsóknarmanna í Norðurþingi var samþykktur á félagsfundi Framsóknarfélags Þingeyinga í dag. Nýr oddviti listans er Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri sjúkraflutninga við Heilbrigðisstofnun Norðurlands. Í ávarpi á fundinum hvatti hann félagsfólk áfram í aðdraganda kosninga. Hér má sjá hverjir skipa efstu sex sæti listans: 1. Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri. 2. Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði. 3. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi og atvinnurekandi. 4. Elísabet Anna Helgadóttir, geislafræðingur. 5. Eiður Pétursson, vélfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi. 6. Helga Björg Sigurðardóttir, þjónustustjóri GeoSea.