Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Loka Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna snjóflóðahættu

Vegagerðin hefur lýst yfir óvissustigi á Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á Vestfjörðum vegna snjóflóðahættu. Með tilliti til veðurspár verður vegunum lokað á miðnætti í kvöld, aðfaranótt sunnudags.Gul viðvörðun tekur gildi á Vestfjörðum klukkan tvö í nótt vegna norðaustanstorms og verður viðvörunin í gildi til níu annað kvöld. Spáð er 15 til 23 metrum á sekúndu, snjókomu eða skafrenningi með lélegu skyggni og versnandi færð.Snjóflóð féll á veginn um Súðavíkurhlíð snemma í gærmorgun.Davíð Pierre Milesi-Gaches
Loka Flateyrarveg og veginum um Súðavíkurhlíð á miðnætti vegna snjóflóðahættu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta