Talsverðar skemmdir urðu á einni stærstu olíubirgðastöð Mið-Austurlanda í drónaárás Írana á Sameinuðu arabísku furstadæmin. Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir liðsauka til að tryggja olíuflutninga um Hormússund.Mikill svartur reykur stígur upp úr olíbirgðastöðinni við höfnina í Fujairah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum eftir árás Írana. Höfnin er ein sú fjölfarnasta í heimi og ef starfsemi birgðastöðvarinnar skerðist gæti heimsmarkaðsverð olíu hækkað enn frekar.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur kallað eftir liðsauka í formi herskipa frá Kína, Frakklandi, Japan, Suður-Kóreu og Bretlandi til að tryggja olíuflutninga um Hormússund. Bandarískir fjölmiðlar segja fimm þúsund bandaríska hermenn á leið til Mið-Austurlanda með herskipum. Kenningar eru uppi um að þeir eigi að ná yfirráðum yfi