Smáframleiðendur, bændur og sjómenn af öllu landinu kynna afurðir sínar á Matarmarkaði Íslands sem hófst í Hörpu í dag. Þar má meðal annars finna ýmsar vörur úr hunangi, handgerð páskaegg og þurrkað hrossakjöt.„Við erum að fá svona 40 til 50 framleiðendur af öllu landinu sem eru að selja allt milli himins og jarðar,“ segir Hlédís Sveinsdóttir, viðburðarstjóri.„Það er mikið um sérvöru. Á markaðinum getur þú fundið vörur sem þú finnur hvergi annars staðar, bæði árstíðabundnar og líka það er verið að framleiða algjört matarhandverk, handgert súkkulaði sem er búið að nostra við yfir í soðin slög sem eru tilbúin í airfryerinn. Krakkarnir eru alveg vitlausir í þetta, þetta er í fyrsta skipti sem þetta er á Íslandi. Það er forréttur, það er aðalréttur og það er eftirréttur í boði.“