Afgreiðslufólki húsbúnaðarverslunar í verslanamiðstöð í þýsku höfuðborginni Berlín brá nokkuð í brún í gær þegar villisvín vafraði þangað inn. Því hafði tekist að lauma sér gegnum rennihurðir miðstöðvarinnar sem er í Koepenick-hverfinu.Starfsfólk verslunarinnar forðaði sér út eftir að svínið tók að gramsa kröftuglega í vöruúrvalinu í hillunum. Heimsókn svínsins lauk á friðsamlegum nótum þótt fjöldi lögreglumanna og dýralækna hefði þyrpst á vettvang vopnaðir svæfingabyssum og öðrum búnaði.Starfsfólk dýragarðsins í Berlín segir að útilokað hefði verið að svæfa svínið vegna skipulagsins í versluninni og því hafi verið gripið til þess ráðs að raða upp vörubrettum á leiðinni þar sem það var lokkað út.Dýrið hafi snúið aftur til heimkynna sinna í skóginum þaðan sem það kom, ósært. Þetta er ekki í