Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Allt að sjö metra þykkt flóð: Með þeim stærri sem menn muna

Þó að það sé blíðviðri í dag hefur snjóað mikið á Tröllaskaga síðustu daga. Síðan á miðvikudag hefur mælst uppsöfnuð úrkoma á Siglufirði og Ólafsfirði, um og yfir 100 millimetrar.Í nótt eða seint í gærkvöldi féllu snjóflóð úr Selskál í Hvanneyrarhnjúki á Siglufjarðarveg skammt utan við bæinn, milli Strákaganga og Siglufjarðar.„Miðað við umfangið og breiddina á þessu er þetta allavega 150 metra breitt og 8-900 metra langt,“ segir Gestur Hansson snjóflóðaeftirlitsmaður á Siglufirði.„Þetta virðast vera tvö snjóflóð sem falla þarna. Seinna flóðið tvístrast hvort í sína áttina, fyrra flóðið stoppar á veginum og fer út í sjó,“ segir Gestur.Einn bær í Siglufirði hefur verið rýmdur á meðan óvissustig vegna snjóflóðahættu varir. Gestur telur að þykkt flóðsins sé allt að sjö metrar.Veginum var lokað
Allt að sjö metra þykkt flóð: Með þeim stærri sem menn muna

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta