Brynja Dan Gunnarsdóttir, oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ, hefur sagt sig úr flokknum eftir að ljóst varð að hún fengi ekki oddvitasætið fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Hún sakar uppstillinganefnd um klíkuskap og ófagleg vinnubrögð.„Það var umsóknarfrestur til 1. febrúar og ég sendi inn í aðdragandanum að ég hefði áhuga á því að leiða listann áfram. Við náðum síðast inn manni í bæjarstjórn eftir 12 ára hlé, þannig það var svona ánægjulegt og við unnum góða vinnu í Garðabænum. Það hafa engir skandalar átt sér stað eða neitt slíkt, þetta einhvern veginn kom flatt upp á mig,“ segir Brynja í samtali við fréttastofu.Framboðslisti Framsóknar í Garðabæ var kynntur í dag og er nafn Brynju er þar hvergi að finna. Hlynur Bæringsson, varabæjarfulltrúi og fyrrverandi landsliðsmaður í kör