Hlynur Bæringsson, varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri, verður oddviti Framsóknarflokksins í Garðabæ í sveitarstjórnarkosningunum í maí. Framboðslisti flokksins var birtur í dag.Í fréttatilkynningu frá Framsóknarfélagi Garðabæjar kemur fram að tillaga uppstillinganefndar Framsóknar að framboðslista hafi verið samþykkt einróma á fjölmennum félagsfundi á kaffihúsinu Dæinn í Urriðaholti í dag.„ Ég er afar þakklátur fyrir það traust sem mér er sýnt og er fullur tilhlökkunar að leiða þennan öfluga og samstillta hóp í kosningunum sem fram undan eru,“ er haft eftir Hlyni í tilkynningu. FRAMBOÐSLISTI FRAMSÓKNAR Í GARÐABÆ Í HEILD SINNI: 1. Hlynur Bæringsson, varabæjarfulltrúi og rekstrarstjóri 2. Anna Margrét Steingrímsdóttir, markaðs- og þjónustustjóri. 3. Einar Þór Einarsson, framkvæmdastjóri