Á-listinn í Rangárþingi ytra samþykkti framboðslista fyrir sveitarstjórnarkosningar á félagsfundi í dag. Eggert Valur Guðmundsson, oddviti sveitarstjórnar Rangárþings ytra, leiðir listann.Í tilkynningu frá Á-listanum, sem skilgreinir sig sem óháða hreyfingu áhugafólks um sveitarstjórnarmál og fer með meirihluta í sveitarstjórn Rangárþings ytra, segir að framboðslistinn endurspegli áherslur um fjölbreyttan bakgrunn og góða tengingu við samfélagið.