Er allt eins og það á að vera? Er mannkynið óbreytanlegt? Höfum við ekki getu til að vera annað en eigingjörn, svikul, ofbeldisfull og siðblind? Miðað við ástand heimsins virðist svarið borðliggjandi. Einmitt þessum spurningum velti Voltaire fyrir sér í háðsdeilunni Birtíngi (Candide, ou l'Optimisme) sem kom út árið 1759. Næstum því þrjú hundruð árum seinna grípur Leikfélag Akureyrar þessar...