Framboðslisti Samfylkingarinnar á Akureyri fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar var samþykktur samhljóða á félagsfundi í húsakynnum félagsins í dag.Nýr oddviti flokksins í bænum er Sindri S. Kristjánsson, en hann hefur verið varabæjarfulltrúi flokksins á yfirstandandi kjörtímabili.Í tilkynningu segir að Hilda Jana Gísladóttir, sem var oddviti flokksins í síðustu kosningum, hafi setið í uppstillinganefnd. Á félagsfundinum var henni þakkað fyrir vel unnin störf í bæjarstjórn síðustu átta ár.