Listaháskóli Íslands flytur hvorki í húsnæði Tækniskólans né í Tollhúsið. Rektor segir mjög aðkallandi að finna varanlega lausn á húsnæðisvanda skólans.„Við höfum verið að vinna með háskólaráðuneytinu að ákveðinni tillögu sem verður tilkynnt fljótlega,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, rektor LHÍ.Í maí 2022 var undirrituð viljayfirlýsing um að deildir listaháskólans, sem nú eru starfræktar á fjórum stöðum, myndu sameinast undir einu þaki í Tollhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík. Rúmum tveimur árum síðar var tilkynnt að spara mætti milljarða með því að flytja starfsemina frekar í húsnæði Tækniskólans á Skólavörðuholti. Nú hafa forsendur breyst því tafir eru á byggingu nýs húsnæðis Tækniskólans í Hafnarfirði. TAFIR Á BYGGINGU NÝS TÆKNISKÓLA Í svari menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneyti