Í vetrargaddi og ófærð, skammdegismyrkri og stórhríð brutust landpóstarnir yfir heiðar og fjalladali og létu sér fátt fyrir brjósti brenna. Landpóstar urðu þekktir menn á sinni tíð og nutu virðingar fyrir hreysti og ósérhlífni.Helgi Valtýsson safnaði saman frásögnum fjölmargra landpósta og nutu Söguþættir landpóstanna mikilla vinsælda um áratugaskeið en bækurnar hafa lengi verið ófáanlegar. Nú hefur verið birt úrval úr þáttunum sem veita innsýn í heim sem er að mestu horfinn.„Ansi oft komst pósturinn ekki til skila á réttum tíma og stundum ekki til skila því landpóstarnir lentu í alveg hræðilegum hremmingum,“ segir Kolbrún Bergþórsdóttir gagnrýnandi Kiljunnar. „Þetta var stétt manna sem fór ekki að væla þegar það var hríð úti. Þetta voru hörkumenn sem fóru í vinnu og víluðu ekki fyrir sér