Heimsóknir notenda á Evrópuvefinn, upplýsingaveitu Háskóla Íslands um Evrópusambandið og Evrópumál, hafa margfaldast að undanförnu. Vefurinn hefur verið óvirkur um nokkurt skeið en til stendur að uppfæra og endurbæta hann í aðdraganda fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið í lok ágúst.Að sögn Jóns Gunnars Þorsteinssonar, ritstjóra Vísindavefs Háskóla Íslands, var ákveðið að sækja um styrk til þess að endurbæta vefinn þegar ljóst varð að farið yrði í umræðu um mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu.„Í árslok 2025 fékk vefurinn fimm milljóna króna styrk frá stjórnvöldum til þess að endurbæta hann og nútímavæða því hann starfaði auðvitað á árunum 2011-2013. Það var til dæmis ekki hægt að nota hann í farsímum lengur, hann var ekki skalanlegur.“