Grænlandsvinafélagið Kalak og aðrir Grænlandsvinir standa fyrir samstöðufundi í Norræna húsinu í dag. Þar verða ræðuhöld, grænlenskt listafólk sýnir muni sína, tónlistarfólk stígur á stokk og gestir munu meðal annars geta spókað sig í grænlenskum þjóðbúningi.