Sveitastjóri Súðavíkurhrepps segir það tímaspursmál hvenær eitthvað hræðilegt gerist við Súðavíkurhlíð. Löngu sé kominn tími á göng á svæðinu enda hafi fjölmargir lent í hremmingum, þar sem litlu mátti muna, á leið sinni milli Ísafjarðar og Súðavíkur.