Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Mjög stórt snjóflóð féll yfir Siglufjarðarveg og út í sjó

Stórt snjóflóð féll á Siglufjarðarveg í nótt. Vegurinn var lokaður þegar flóðið féll vegna snjóflóðahættu. 200 METRA YFIR VEGINUM Flóðið féll úr Selskál í Hvanneyrarhnjúki skammt utan við bæinn, milli Strákaganga og Siglufjarðar. Flóðið fór yfir veginn og út í sjó.„Það er margir metrar á þykkt og tekur nokkra ljósastaura og gæti verið 200 metra breitt þarna á veginum,“ segir Óliver Hilmarsson, ofanflóðasérfræðingur Veðurstofunnar.Vegurinn var á óvissustigi allan gærdag og var lokað í gærkvöldi. Það er ekki vitað hvenær flóðið fór en það gæti verið í kringum ellefu í gærkvöldi. HÆTTAN EYKST AFTUR Á MORGUN „Það mun taka talsvert langan tíma að moka þetta flóð, þetta er það stórt og þykkt,“ segir Óliver.Mikil úrkoma hefur verið á Tröllaskaga undanfarna daga. Veðurstofan segir á vef sínu
Mjög stórt snjóflóð féll yfir Siglufjarðarveg og út í sjó

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta