Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Skjálftar á djúpa svæðinu

Nokkur smáskjálftavirkni var í morgun suðaustur af Bárðarbungu og skipta skjálftarnir tugum. Á Veðurstofunni eru þessar slóðir stundum kallaðar djúpa svæðið því að skjálftar mælast iðulega þar á fimmtán til tuttugu kílómetra dýpi eins og í morgun. Hrinur verða oft þarna eftir skjálfta í Bárðarbunguöskjunni. Það gerðist líka í morgun því klukkan sjö varð skjálfti af stærðinni 2,7 í Bárðarbungu. Bárðarbunga á Vatnajökli.RÚV / Einar Rafnsson
Skjálftar á djúpa svæðinu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta