Eirný Ósk Sigurðardóttir veit allt um osta, enda oft nefnd Ostadrottning Íslands. Eirný átti óvenjulega barnæsku í Afríku og unglingsár í Skotlandi en kom heim rétt fyrir hrun og opnaði ostabúðina Búrið. Hún er einn stofnenda Matarmarkaðar Íslands sem er einmitt haldinn um helgina.