Bygging nýrra stúdentagarða við Háskólann á Akureyri er talsvert á eftir áætlun. Framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta í bænum segir mikla þörf fyrir íbúðirnar og biðlistar hafi lengst.„Þetta hefur gengið hægar en við kannski upphaflega áætluðum. Hvort þær áætlanir okkar 2023 voru raunhæfar, held ég ekki,“ segir Jóhannes Baldur Guðmundsson, framkvæmdastjóri Félagsstofnunar stúdenta á Akureyri.Hönnunarsamkeppni um byggingu stúdentagarða, austanmegin á háskólasvæðinu og meðfram Dalsbraut, lauk í febrúar 2024. Í vinningstillögunni voru teiknaðar þrjár byggingar - með möguleika á þeirri fjórðu síðar, um 170 leigurými, ýmist íbúðir eða herbergi. Væntingar voru um að stúdentar gætu flutt inn á þessu ári en nú er ljóst að af því verður ekki. MIKIL VÖNTUN OG SKIPTINEMAR Á GISTIHEIMILIUM Mik