Veðurfræðingur Vegagerðarinnar varar við því að erfið akstursskilyrði og blint verði í stórhríð á Vestfjörðum á morgun, sérstaklega á fjallvegum, svo sem Steingrímsfjarðarheiði og Klettshálsi. Útlit er fyrir áframhaldandi hríð á þessum slóðum á mánudag.Einnig má búast við því að hvöss austanátt og blint verði í snjókomu og skafrenningi á Hellisheiði og í Þrengslum frá miðnætti í kvöld og til hádegis á morgun.Þá er varað við snörpum vindhviðum, um 35 m/s, við Hafnarfjall og á Kjalarnesi frá klukkan þrjú í nótt til klukkan sjö í fyrramálið, og á Snæfellsnesi síðdegis á morgun.