Það eru ekki bara íþróttamenn sem slíta krossband í hné, hundar verða einnig fyrir því óláni og meiðslin eru býsna algeng meðal þeirra þó að það sé misjafnt eftir tegundum. Tíkin Bessý sleit krossband fyrir skemmstu og var drifin í skurðaðgerð á Dýraspítalanum í Víðidal.