Íbúar í borginni Kherson í Úkraínu fara síður út þegar veðrið er gott. En þegar það er þoka, rigning og snjór má búast við að sjá fólk á gangi úti við. Og ástæðan? Þá eru minni líkur á að fólk sé sært eða drepið af drónum Rússlandshers.Borgin er í suðurhluta Úkraínu, við ána Dnípró. Hinum megin við ána eru rússneskir hermenn sem herja á borgarbúa alla daga með drónum. Á drónunum eru myndavélar og sprengiefni. Sá sem stýrir dróna sér því hvert hann stefnir og viljandi er þeim beint að fólki á gangi úti og að bílum á ferð.Borgarbúar kalla þetta „human safari“ eða mannaveiðar. Það sé eins og hermennirnir séu á eftir almennum borgurum til að særa þá eða drepa.Rússlandsher náði borginni Kherson á sitt vald 1. mars 2022. Herinn drap fólk, pyntaði og særði og vann miklar skemmdir á húsum og innvi