„Einhvern veginn dröslaði ég mér í gegnum hlutina,“ segir Ragnheiður Haralds Eiríksdóttir Bjarman geðhjúkrunarfræðingur sem hefur komið víða við á ferlinum. Margir þekkja hana sem kynlífsráðgjafa frá aldamótum og prjónakonu en í dag starfar hún á Landspítalanum í geðþjónustu.Hulda Geirsdóttir ræddi við Ragnheiði í þættinum Fyrst á fætur á Rás 2 um lífið og tilveruna þar sem hún sagði meðal annars frá því hvernig hún fann sig í geðhjúkrun og hvernig reynsla hennar af því að vera í sambandi við mann sem átti við geðrænan vanda að stríða styrkti þá tilfinningu. LÍTUR EKKI Á SYSTKINI SÍN SEM STJÚP- EÐA HÁLFSYSTKINI Ragnheiður fæddist á Sauðárkróki. Foreldrar hennar voru á lokaári í Menntaskólanum á Akureyri þegar hún kom í heiminn. „Í þeim bekk fæddist líka Stefán Eiríksson útvarpsstjóri og