Lögreglan handtók mann í miðbæ Reykjavíkur í nótt þar sem hann hafði ráðist á dyravörð. Við leit á honum fundust fíkniefni en maðurinn hefur verið vistaður í fangaklefa þar til hann er talinn hæfur til skýrslutöku. Fleiri en tíu ökumenn voru stöðvaðir í akstri vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna.