Það eru þeir Ármann Einarsson og Magni Ásgeirsson sem fara fyrir skólanum. Nemendur skólans eru af öllu litrófi samfélagsins og á öllum aldri.„Jú, það er það, kannski minnst af svona þessum miðjum aldri. En ég finn að það er að aukast eftirspurn frá þeim sem eru komnir á eftirlaun, sem eru að koma hérna og láta draum sinn rætast, kannski, og hafa aldrei lært á það hljóðfæri,“ segir Ármann.„Ég er að reyna að búa til tónlistarskólann sem ég fór aldrei í. Vegna þess að ég hef aldrei farið í tónlistarskóla, ég veit ekkert hvað ég er að gera og hef aldrei lært neitt og er að reyna að kenna öðrum það,“ segir Magni.Þá var rætt við Svanhvíti Pétursdóttur sem sló til og fór að læra á harmónikku. Hún segir skólann frjálslegan og skemmtilegan – það sé ekkert bannað.Meira í spilaranum hér fyrir ofan.