Delcy Rodriguez, sitjandi forseti Venesúela, hefur beðið Donald Trump Bandaríkjaforseta að afnema refsiaðgerðir gegn landinu. Refsiaðgerðirnar voru settar á landið 2014. Þær hafa lamað efnahagskerfi landsins og verðbólga fór upp í 475% á síðasta ári.Efnahagsástandið hefur einnig bitnað á uppbyggingu í olíuiðnaðinum. Landið framleiðir aðeins nokkrar milljónir olíutunna á hverjum degi, þrátt fyrir að búa yfir einum mestu olíuauðlindum heims.Bandarísk yfirvöld hafa sóst eftir meiri aðgang að olíu- og steinefnaauð landsins eftir að fyrrum forseti landsins, Nicolas Maduro, var handtekinn í aðgerð bandaríska hersins þann 3. janúar. Í gær heimiluðu svo bandarísk stjórnvöld innflutning á áburði frá Venesúela, en verð á áburði hefur hækkað eftir að stríð Bandaríkjanna og Ísrael gegn Íran hófst.Rodr