Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bandaríski herinn gerir miklar árásir á Kharg-eyju

Bandaríski herinn gerði miklar árásir á Kharg-eyju norðarlega í Persaflóa í gær. Nær allur flutningur á hráolíu fer um eyjuna. Donald Trump Bandaríkjaforseti greindi frá árásunum í færslu á samfélagsmiðlinum Truth Social, og sagði árásirnar vera einar mestu árásir sögunnar í Mið-Austurlöndum og að hernaðarleg skotmörk hefðu verið þurrkuð út í krúnudjásni Írans, á Kharg-eyju.Trump sagði að olíuinnviðum hefði verið hlíft í árásinni en ef olíuflutningaskip fái ekki að sigla frjáls og örugg um Hormússund muni hann endurskoða ákvörðun sína um að hlífa olíuinnviðum. Trump sagði að bandaríski sjóherinn myndi brátt fylgja skipum í gegnum Hormússund svo olíuflutningar um sundið geti haldið áfram.Kharg-eyja er um þrjátíu kílómetra frá meginlandi Íran, norðarlega í Persaflóa og um 22 ferkílómetrar að
Bandaríski herinn gerir miklar árásir á Kharg-eyju

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta