Verslunarmenn í Rammagerðinni segjast ætla að fara fram á lögbann á Isavia þar sem ríkisfyrirtækið hafi lokað verslun Rammagerðarinnar á Keflavíkurflugvelli í leyfisleysi. Isavia telur Rammagerðina skulda í leigu en Rammagerðin segir forsendur leigusamningsins löngu brostnar.