Minnst 12 heilbrigðisstarfsmenn eru látnir eftir loftárás Ísraelshers á heilsugæslustöð í suðurhluta Líbanon. Líbanska heilbrigðisráðuneytið segir í yfirlýsingu að það syrgi þá heilbrigðisstarfsmenn sem féllu í árásunum.„12 læknar, sjúkraflutningamenn og hjúkrunarfræðingar voru á vakt, þau voru öll drepin og einn starfsmaður til viðbótar særðist.“ Segir í tilkynningu ráðuneytisins.Árásin varð í bænum Burj Qalawiya. Heilbrigðisráðuneytið segir að árásin sé önnur árás Ísraelshers í kvöld sem beint sé að heilbrigðisgeiranum. Fyrr í kvöld hafi tveir sjúkraflutningamenn sem tengdir voru Hezbollah-hreyfingunni einnig verið drepnir.