Stríðið í Mið-Austurlöndum hefur mikil áhrif á innrásarstríð Rússa í Úkraínu. Ákvörðun Bandaríkjanna um að aflétta þvingunum á rússneska olíu er afar góð fyrir efnahag Rússa.Með afléttingunni geta ríki heims keypt olíu frá Rússlandi án þess að eiga á hættu viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna. Olíuframboð minnkaði töluvert þegar Íranar hótuðu að ráðast á olíuskip á Hormússundi, sem flytja olíu frá ríkjum Persaflóa. Olíuverð hefur síðan náð nýjum hæðum.Rússar hafa aukið olíuframleiðslu eftir að stríð Írana og Ísraels og Bandaríkjanna hófst, til að anna aukinni eftirspurn.„Og það þýðir að þeir græða á heildarútflutningi jarðefnaeldsneytis um 510 milljónir evra á degi hverjum í marsmánuði. Og þessi olía og þessi gasútflutningur er notaður til þess að fjármagna stríðið í Úkraínu. Þannig þeir sem g