Blaðamannaverðlaun Blaðamannafélags Íslands voru afhent í fjórum flokkum í dag. Viðtal við Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, umfjallanir um loftslagsmál, umfangsmiklar njósnaaðgerðir og E. coli-matarsýkingu fengu verðlaunin í ár.Verðlaunin eru veitt árlega á vegum Blaðamannafélags Íslands og eru veitt í fjórum flokkum: fyrir viðtal ársins, umfjöllun ársins, rannsóknarblaðamennsku ársins og blaðamannaverðlaun ársins. Tilnefningarnar voru tólf talsins, þrjár í hverjum flokki. MIKILVÆGT FYRIR BLAÐAMENN AÐ SÉRHÆFA SIG Í EINHVERJU Kjartan Kjartansson, Sýn, hlaut Blaðamannaverðlaun ársins fyrir fréttaskýringar sínar um loftslagsmál á visir.is. Verðlaunin voru veitt í fjórum flokkum síðdegis. Kjartan sagði við afhendinguna að mikilvægt væri, en jafnframt erfitt, fyrir íslenska blaðamenn að s