Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsáðherra, kynnti nýverið áform um lagasetningu um uppbyggingu raforkuinnviða og einföldun regluverks.Ástæðan er sú að framkvæmdir vegna dreifikerfis raforku hafa oft tafist vegna ágreinings við landeigendur um eignarnám og fjárhæð eignarnámsbóta, meðal annars við Hvammsvirkjun.Lagabreytingin á að tryggja að framkvæmdir geti hafist samhliða samningaviðræðum við landeigendur.Markmið laganna er að hraða þjóðhagslega mikilvægum framvæmdum.Landeigandi í Norðurárdal er sleginn yfir áformum ráðherra. TELUR RAFORKUNA FARA TIL ERLENDRA FJÁRFESTA Guðrún Sigurjónsdóttir er landeigandi í Norðurárdal og formaður Samtakanna Sól til framtíðar.Hún segir að landeigendum sé sífellt talin trú um að það sé þjóðhagslega hagkvæmt að fara í gegnum lönd þeir