Tónlistarkonan Laufey heldur tvenna tónleika í Kórnum í Kópavogi um helgina, á laugardags- og sunnudagskvöld. Áhorfendur verða átta þúsund hvort kvöld.Sindri Ástmarsson, verkefnastjóri hjá Senu, segir mikinn undirbúning á bak við svo stóra tónleika. „Hérna eru mörg hundruð hátalarar, mörg hundruð fermetrar af LED-skjáum, mörg þúsund stólar og 500 manns í vinnu að gera allt tilbúið,“ segir Sindri.Gestir eru hvattir til að kynna sér fyrirkomulagið vel á heimasíðu Senu. Lokað verður fyrir alla umferð að Kórnum og sérstakar sætaferðir fyrir tónleikagesti frá Smáralind, sem verður eina leiðin til að komast að húsinu. Þeir sem koma með leigubíl þurfa að stoppa lengra frá. Ekki verður hægt að koma á einkabíl að Kórnum og engin bílastæði innan götulokana.„Við þurfum að taka yfir allt hverfið í rau