Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Óvíst hvort leyfi fæst fyrir blóðmerahaldi

Fagráð Matvælastofnunar um velferð dýra tók til umfjöllunar umsókn Ísteka um blóðmerahald, sem fellur undir reglugerð um velferð dýra sem notuð eru í vísindaskyni, á fundi 13. febrúar. Ráðið komst ekki að samróma niðurstöðu og kallað hefur verið eftir frekari gögnum og rökstuðningi frá fyrirtækinu.Fulltrúar Bændasamtakanna og Dýralæknafélags Íslands í ráðinu veittu umsókninni jákvæða umsögn, en fulltrúar Dýraverndarsambands Íslands og Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands veittu henni neikvæða umsögn.Yfirdýralæknir MAST og formaður ráðsins taldi gögn með umsókninni ófullnægjandi, sem og rökstuðning fyrir vísindalegum og samfélagslegum ávinningi, og taldi sig ekki geta veitt umsókninni jákvæða umsögn.„Við höfum kallað eftir þeim gögnum, viðbrögðum fyrirtækisins. Við getum þá bætt við því sem up
Óvíst hvort leyfi fæst fyrir blóðmerahaldi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta