Nýr framboðslisti, Framtíð Árneshrepps, hefur verið kynntur í Árneshreppi á Vestfjörðum fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Markmiðið með framboðinu er að bjóða íbúum, sem ekki telja tímabært að sameina Árneshrepp og Kaldrananeshrepp, raunverulegan valkost. HAGSMUNUM ÁRNESHREPPS BETUR BORGIÐ SEM SJÁLFSTÆTT SVEITARFÉLAG Í fréttatilkynningu segir að í aðdraganda kosninga um mögulega sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps, hafi nýr framboðslisti verið kynntur. Markmiðið sé að bjóða þeim íbúum, sem telja að ekki sé tímabært að sameina sveitarfélögin tvö, raunverulegan valkost.„Mikil umræða hefur skapast um fyrirhugaða sameiningu og ljóst er að skiptar skoðanir eru meðal íbúa um hvort slíkt skref sé rétt á þessum tímapunkti. Margt sé enn óljóst varðandi mögulega sameiningu og listinn