Hjálmar H. Ragnarsson, tónskáld og fyrsti rektor Listaháskóla Íslands, er látinn. Hjálmar var meðal ástsælustu tónskálda þjóðarinnar og forystumaður í uppbyggingu lista á Íslandi í áratugi.Hjálmar fæddist á Ísafirði 23. september 1952, sonur hjónanna Sigríðar Jónsdóttur Ragnar og Ragnars H. Ragnar. Faðir hans var skólastjóri Tónlistarskólans á Ísafirði sem hýstur var að stórum hluta á heimili þeirra svo hann var alla tíð umkringdur tónlist.Eftirlifandi eiginkona Hjálmars er Ása Richardsdóttir liststjórnandi og hann lætur eftir sig þrjú uppkomin börn.Hann stundaði tónlistarnám á Ísafirði og í Reykjavík og hélt til frekara náms í Bandaríkjunum að loknu stúdentsprófi. Hjálmar lauk meistaraprófi í tónsmíðum og tónfræðum frá Cornell-háskólanum og stundaði nám í raf- og tölvutónlist í Hollandi.H