Loðnuvertíðinni er að ljúka og síðustu farmarnir að berast að landi. Loðnan er við það að hrygna og mikil eftirspurn á markaði eftir verðmætunum, fullþroskuðum hrognum.Í Neskaupstað slettast loðnuhrognin ofan í hvert karið á fætur öðru. Allt að 800 kör fást úr hverjum báti og verðmæti hvers þeirra eru talin í hundruðum þúsunda.„Veður og vindar hafa verið okkur nokkuð hagstæð á þessari vertíð þannig að við verðum ekki í neinum vandræðum með að brenna inni með kvóta, það mun allt nást hjá okkur,“ segir Oddur Einarsson, yfirverkstjóri í fiskiðjuveri Síldarvinnslunnar í Neskaupstað.Skip Síldarvinnslunnar hafa lokið veiðum og landa síðustu loðnuförmunum á næstu dögum.Mikil verðmæti eru unnin í uppsjávarvinnslum landsins og fullþroskuð loðnuhrogn fylla kör í þúsundatali. Vertíðinni er að ljúka o