„Ég var sjálf slegin yfir sumu af því sem mér var sýnt í ljósi þess að nú hélt tæknin að ég væri 15 ára barn,“ segir Þórdís Elva Þorvaldsdóttir, rannsakandi HateFYP sem er nýtt íslenskt rannsóknarverkefni sem reynir að kortleggja hversu berskjölduð börn og ungmenni eru fyrir hatursorðræðu á netinu.Urður Örlygsdóttir fjallaði um rannsóknina í Kastljósinu á RÚV og ræddi við Þórdísi. TÍUNDA HVER ATHUGASEMD FJANDSAMLEG „Núna er rúmlega tíunda hver athugasemd sem er gerð um hinsegin fólk af hatursfullum toga,“ segir Þórdís og tekur fram að hatur gegn hinsegin fólki í athugasemdakerfum og almennri umræðu á netinu hafi ríflega tvöfaldast. „Þetta verkefni sem við kölluð Hate For Your Page er innblásið af niðurstöðum annarrar rannsóknar sem kom út í apríl 2024 og þykir enn tiltölulega ný.“Sú ran