Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Sóttu kalda og blauta skíðagöngumenn á Hofsjökul

Björgunarsveitir á Suðurlandi aðstoðuðu skíðagöngufólk á Hofsjökli niður af jöklinum síðdegis. Aðstoðarbeiðni barst í morgun frá þremur erlendum skíðagöngumönnum sem voru orðnir kaldir og blautir.Björgunarmenn á tveimur vélsleðum komust að fólkinu rétt fyrir klukkan 13 og var þá einn göngumaður fluttur niður af jökli. Hinir tveir biðu áfram á jöklinum.Sleðarnir héldu svo til baka og sóttu þá tvo sem eftir voru. Fólkið er komið í skjól og unnið er að því að koma búnaði þess niður af jöklinum.Í tilkynningu frá Landsbjörg segir að aðstæður hafi verið afar slæmar, færi erfitt og skyggni lélegt.LandsbjörgLandsbjörg
Sóttu kalda og blauta skíðagöngumenn á Hofsjökul

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta