LAUFKVIST Laufkvist er grænkuband sem spilar þjóðlagaskotna tónlist og sækir innblástur í sólskinspopp. Verkefnið hófst 2024 þegar Francis Laufkvist, forsprakki hljómsveitarinnar, tók þátt í Músíktilraunum en varð svo að hljómsveit sumarið eftir.Á Upprásinni var hljómsveitin í aðeins annarri mynd en vanalega þar sem tveir meðlimir hennar eru erlendis. Á tónleikunum spiluðu Francis Laufkvist Kristinsbur og Víf Ásdísar Svansbur en við sveitina bættust svo Þorsteinn Jónsson á trommur, Bergey Freysdóttir á klarinett, Jón Logi Pálma á fiðlu og gítar og Eir Önnu Ólafsbur á selló. Hljómsveitin náði aðeins að hittast og æfa í heild sinni sama dag og tónleikarnir voru. „Þetta er svo flókið þegar fólk er í skóla og fullt af öðrum hljómsveitum,“ segir Francis. Það skipti þó litlu máli þar sem þau vo