Holtavörðuheiði var lokað aftur á fjórða tímanum vegna þriggja bíla árekstrar. Hún hefur verið opnuð að nýju. Lögreglan á Vesturlandi óskaði eftir aðstoð björgunarsveita við lokanir.Ásmundur Kristinn Ásmundsson yfirlögregluþjónn segir engan hafa slasast í árekstrinum.Hann reiknar með því að hægt verði að opna heiðina aftur innan tíðar en þar eru akstursskilyrði erfið og skyggni lélegt. Einn bíll var óökuhæfur eftir áreksturinn.Veðurstofan og Vegagerðin vara áfram við hríðarveðri um norðan- og norðvestanvert landið fram eftir degi með tilheyrandi líkum á samgöngutruflunum. Upplýsingar um færð má sjá á vef Vegagerðarinnar, Umferðin.is.Fréttin hefur verið uppfærð.