Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Siumut segir sig úr landsstjórninni utanríkisráðherranum til armæðu

Jafnaðarmannaflokkurinn Siumut hefur sagt skilið við grænlensku landstjórnina, samkvæmt tilkynningu sem birt var eftir hádegið. Það þýðir að utanríkisráðherrann Vivian Motzfeldt verður ekki áfram hluti ríkisstjórnarinnar en hún hefur farið fremst í flokki í viðbrögðum við ásælni Donalds Trump Bandaríkjaforseta í Grænland, ásamt dönskum kollega sínum Lars Løkke Rasmussen. Hún kveðst í samtali við DR óánægð með ákvörðun flokksins, henni sé brugðið og hún þurfi að taka ákvörðun um eigin pólítísku framtíð. Jens-Frederik Nielsen, formaður landsstjórnarinnar, kveðst mjög vonsvikinn yfir ákvörðun Siumut en segir flokkinn ráða stefnu sinni sem hann virði. Aleqa Hammond, formaður Siumut, hefur um nokkurra daga skeið hótað að segja skilið við stjórnarsamstarfið með Demokraatit, IA og Atassut eftir a
Siumut segir sig úr landsstjórninni utanríkisráðherranum til armæðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta