Leiðtogar Evrópuríkja hafa fordæmt þá ákvörðun Bandaríkjastjórnar að aflétta tímabundið banni við kaupum á rússneskri olíu. Yfirlýstur tilgangur er að tryggja hráolíubirgðir svo komast megi hjá því að olíuverð fari alveg úr böndum.Leiðtogarnir óttast, samkvæmt umfjöllun Politico, að Rússar geti aukið enn á atlögur að Úkraínu með því að fylla fjárhirslur af olíupeningum. Þýski kanslarinn Friedrich Merz segir ákvörðunina hafa komið á óvart og kveðst vilja vita nákvæmlega hvað liggi að baki ákvörðunar ríkisstjórnarinnar.Vandinn liggi frekar í verðákvörðunum en birgðaskorti, enda hafi verið ákveðið að losa um neyðarbirgðir olíu víða um heim sem ætti að hægja á verðhækkunum. Leiðtogar G7-ríkjanna höfðu á fundi í fyrradag lagt hart að Donald Trump Bandaríkjaforseta að slaka ekki á þvingunum gagn