Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gokart á ísilagðri Stakhólstjörn

Hingað til hefur gokart aðallega verið stundað á sumrin hér á landi en því langar Gunnar Hákonarson mótorsportáhugamann að breyta. Hann rekur Gokart Akureyri og hefur útbúið nokkra bíla þannig að hægt sé að keyra þá á ís.Landinn hitti Gunnar á Vetrarhátíðinni við Mývatn þar sem hann var með nokkra bíla fyrir fólk til að prófa og þeim sem prófuðu virtist alls ekki leiðast aksturinn. „Þetta er bara ótrúlega lítið leiðinlegt,“ segir Þorlákur Páll Jónsson, sem hafði aldrei áður keyrt gokart-bíl nema á ís.Landinn er á dagskrá öll sunnudagskvöld kl. 19:45 og í Spilara RÚV þegar þér hentar.
Gokart á ísilagðri Stakhólstjörn

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta